mánudagur, desember 20, 2004

Yo hands can't hit what yo eyes can't see 

Ég sleppti því að vera með yfirlýsingar um prófin á blogginu í þetta skipti. Því ég hef alltaf þurft að láta eins og aumingi á mínu eigin bloggi loks þegar einkunaspjaldið kemur. En núna get ég með sanni sagt að ég hafi gjörsamlega rústað þessum prófum og þau eru dauðari en pox(úff reminisce). Ég eisaði prófin og get því nú verið bleisaður alveg uppí rassgat.

Jólaballið
Damn homie. Það var eins og kúrekamynd.

Síðan er ég kominn með frekar ill shit vinnu hjá eddu miðlun. Vinn við að fara búð úr búð og athuga hvort það sé ekki allt í orden, og ef ekki þá rústa ég staðnum mafiastyle og segi; EDDA MOTHERFOKKERARNIR YKKAR.
En um daginn þá var ég í bónus og HHG kom að spjalla við mig um bókina sína og annað skran. Hann þekkti mig ekki en hefði ekki verið thunderfyndið ef ég hefði sagt; Já bókin þín...gripið síðan bók Halldórs Guðmundssonar og lamið hann með henni í andlitið, tekið síðan góðan mjaðmahnykk og bombað honum útí konfektið, dregið hann síðan á hárinu og hent honum inní grænmetisdeild og þar hefði ég kastað í hann dósum af maltöli á tilboði og sagt síðan; skrifaðu 4.bindi og skýrðu það DNA, rottuhaus!!.

I need love btw/ Hey Lover

Float like a butterfly and sting like a bee.

ég fékk 10 í líkamsrækt.

laugardagur, desember 11, 2004

Digital Island fyrir digital íslendinga 

Botswana Rockers
Ég vaknaði þunnur í morgun. Það var vegna þess að ég drakk mjög mikið í gær. Það eina sem gerðist eitthvað spennó á þessu stredderíi í gær er það að ég drakk bjór í klippingu. En ég er kominn með digital Ísland sem er eitthvað það allsvakalegasta dæmi sem er í boði. Verst að einhver rás sýni ekki Nonna og Manna(Johnny og Manny).

Ethyone-Loneryder
Ég fekk mitt ,,komplementarí'' eintak í hendurnar í gær. Þessi diskur er alveg svakalega góður og óska ég honum til hamingju með hann. Ég er með eitt lag sem ber nafnið ,,Mosó'' og fjallar um heimabæinn. Ég hvet fólk til þess að fara í næstu óhefðbundnu plötubúð og snatcha eintaki.

Samtal Færslunnar
Skítmenni1: Ég skalf svo mikið í löppunum að ég varð að leggjast til að fá það
Skítmenni2:HAHAHAHAHAHA, ég hef fengið svona skjálfta, ég gat samt alveg fengið það.

Patrick Swayze þema í kvöld

Where Can We Go

fimmtudagur, desember 09, 2004

Love Jones 

Menn eða Maðkar
Þessi próf eru að fara geggjað illa með mig. Ég fékk flog/kvíðakast inná bóksafni í gær og á endanum mætti ég í NAT113 með Palestínu klútinn vafinn um hausinn á mér. Ég leit út eins og nútíma sjóræningi. Ég er samt búinn að horfa svo deadly mikið á Nonna og Manna uppá síðkastið. Ég er búinn að vera leita af þessum þáttum í mörg ár og nú loks fékk ég þá. Sem minnir mig á það að ég á að vera löngu búinn að skila spólunum. En djöfull eru Nonni og Manni eiturfeitir gæjar. Uppáhalds atriðið mitt í Nonna og Manna er þegar þeir elta Þorstein Einarsson til að ná af honum tali um Magnús Hanson og hans mál við Harald Helgason. Það er svo fyndið þegar þeir ná honum loks er hann orðinn fullur á met tíma með bróður sínum og er síðan hárið á honum viðbjóðslega feitt og sveitt undan hattinum.Þorsteinn Einarsson er legend. Mér fannst líka heavy fyndið í síðasta þættinum þegar Magnús Hansson ríður út til þess að drepa Harald, þá er hann klæddur svo djöfulli reffilega. Síðasti þátturinn af Nonna og Manna er meira action packed en allar Die Hard myndirnar til samans.

,,Veistu hvað ég held, að það hafi verið þínir eigin menn sem drápu pitlinn''

BAckwards

þriðjudagur, desember 07, 2004

Í skjoli nætur 

Cocksuckers know his name..

Árið 2004 er líklegast viðburðaríkasta ár ævi minnar. Þetta ár er búið að vera svo rosalegt að ég veit eiginlega ekki hvar ég á að byrja. Ástir, átök, gleði, sorg. Það er samt alveg glatað að vera telja upp svona einhver stikkorð.

Morfís
Morfís var alveg ótrúlegt. Að hafa unnið MR,FG og Kvennó(þó ég hafi ekki keppt þá keppni þá kom ég mikið nálægt henni) var alveg ótrúlegt. En svo að tapa fyrir Versló í úrslitum var sárt. En það er ekki allt á besta veg kosið. Ég mun aldrei gleyma öllu umstanginu í kringum keppnirnar og öllu ruglinu sem fylgdi því. Til dæmis þegar ég var að fara á stefnumót í miðri morfís viku og strákarnir voru að hanna nýtt ,,lúkk'' á mig. Á endanum leit ég út eins og Athafnaskáld og pervert. Gleðinn í okkur þegar Kjartan oddadómari í MR keppninni tilkynnti á afar yfirvegaðan hátt að ræðumaður kvöldins væri úr sigurliðinu og héti hann Atli Bollason. Þegar við fórum í sumarbústaðinn fyrir úrslitin og Goggi rann í allsber í bleytunni frá heita pottinum. Þegar pabbi gaf mér Gin og Tónik á mímisbar eftir að við töpuðum. Þetta voru frábærir tímar og núna er að gera upp við sig hvort ég ætli að vera með aftur.

Jafningjafræðslan
Það gerðist allt mjög hratt, sko í alvöru. Þegar ég fékk vinnuna í JF þá keyrði ég á ofsahraða niður í hitt hús, til að sækja um. Þá var mér tilkynnt að ég væri og seinn en í skyndi kom hún Unnur sem ég kannaðist aðeins við og hún sagði að ég fengi séns. Þá kom í ljós að ég væri ekki á skrá hjá Atvinnumiðlun hins hússins eða hvað það nú heitir og það væri ekki hægt að skrá sig lengur í það. Eftir nöldur með grátstaf í kverkum féllst einhver indælis kona á það að redda mér. Þá var ég tekinn í skyndiviðtal, svo helgina eftir í prufu og búmm ég fékk djobbið. Sumarið var alveg ótrúlegt. Ég var að vinna með ótrúlega góðum krökkum og lærði ofsalega mikið af þeim. Hringferð JF var líka eitthvað sem hafði áhrif á líf mitt á einhvern hátt. Sumarið leið bara allt of hratt.

Rímnastríð
Rímnastríð var haldið í byrjun ágúst. Ég hafði ákveðið snemma um sumarið að taka þátt og voru verðlaunin mjög vegleg. En aðalverðlaunin voru auðvitað þau að vera ,,bestur í battli''. Nú átti líka að sýna þetta í sjónvarpinu og alles. Ég vann fyrstu rímnastríð en tapaði síðan alltaf í úrslitum eftir það. Meira að segja þegar Elvar(seppi) tók ekki þátt í fyrra tapaði ég í úrslitum á móti honum Kjarra KJ sem er með mér í hlómsveit. En mótmælti ég því hástöfum og sagði að ég hefði verið rændur. Í ár hafði ég sem sagt allt að vinna en í senn öllu að tapa. Vikuna fyrir keppnina hékk ég bara með Steinþóri félaga mínum. Við keyrðum útum allan Mosfellsbæ og hlógum saman. Við sögðum samt andstæðingunum að ég væri búinn að æfa mig alla vikuna frá 8 á morgnanna. Á keppnisdaginn var mikið í gangi. Við urðum vitni af árekstri rétt náðum ríkinu, og straujuðum setninguna ,,Æltar hann að segja að ég sé feitur!!!" aftan á bol. Ég man að ég var mjög stressaður fyrir keppnina en Bergur Ebbi(gæi sem þjálfaði ræðuliðið stundum) róaði mig niður og ég var alveg ready. Fyrsta battlið var mjög umdeilt en stend ég fastur á mínu með það að hafa unnið. Sumum fannst ég kannski of grófur þegar ég sagði við hann(Poetrix) ,,hann hlýtur að vera sonur Sri Rhamawati'' en mér fannst þa gúmmelaði. Battlið við Össa var hnífjafnt og gat það komið í hlut okkar beggja að vinna. Mér var dæmdur sigurinn. Þá var það þannig að ég og Kjarri vorum komnir í úrslit. Ég man eftir að fyrstu tvær loturnar voru afar jafnar en honum brást bogalistin í þriðjulotu og notfærði ég mér það eins og reyndur glímukappi. Ég vann rímnastríð, allt var mitt.

50 Cents tónleikarnir
Við vorum í heila viku að æfa fyrir það show. Það var alveg ótrúlega gaman. Allur hláturinn og vinnan sem fór í það. Tónleikarnir sjálfir gengu eins og sögu hélt ég, en fólk sagði að hljóðmaðurinn hefði klikkað á mækunum. Ég smyglaði síðan heillri Havana Club inní mannþröngina þegar 50 sjálfur spilaði og ég drakk hana alla. Uppí stúdíói átti síðan að vera eitthvað skrall fyrir eftir partíið, en það leystist allt upp, þegar við fórum allir að rífast og allt var í rugli. En það skánaði á endanum og við fórum niður á Rex í eftirpartíið. Ég man nú ekki svo mikið þaðan nema það að ég var í fullri alvöru að reyna við einhverja 26 ára gamla konu, hún fílaði það temmilega. Man bara eftir leigubílferðinni heim með Bent og Erlu. Man líka það að hafa ælt fyrir utan heimili mitt. Daginn eftir vaknaði ég, fékk mér kool aid með ísmolum og lagðist útí sólskinið. Daginn eftir fór ég til Hollands.

Hollandsferðin
Ég get ekki mikið sagt frá ferðinni til Hollands þar sem við sórum allir að ,,What happens in Holland stays in Holland''. Þetta var allaveganna námskeið fyrir unga leiðtoga. Þar sem var verið að skerpa á ,,leiðtogahæfileikum'' okkar. Það var allavega frír bjór á hverju kvöldi og mjög mikið af frábæru fólki. Stelpurnar frá Lettlandi, geðveiki Ungverjinn, Giorgio "Banderas", Nando fyndnasti maður sem við höfðum hitt, Arjen nasisti, Ewa endalaust klára og hressa frá Pólandi. Vá hvað það var gaman. Tvær nætur í óbyggðum í Hollandi. Sami hádegismatur tvær vikur í röð. Renegade Song með Bob Marley alltaf spilað klukkan 4 á næturnar. Viðbjóðslegu kóngulærnar sem vöktu yfir okkur. ,,Atli can I sleep in youre bed? aa,ööö, what,I dont,eee,maybe, what, yes what about Halldórs bed!. Garpur, Atli, ég elska ykkur. Atli manstu síðasta kvöldið...

MH
MH hefur verið mildur. Mikið kvennastúss á manni og mikið djamm. Ég var í stjórn nemendafélagsins en ég sagði af mér. Þetta var bara ekki alveg fyrir mig, ég hafði ólíkar hugsjónir og millivegurinn var ræfill. Það er samt indælt í MH núna. Þeir strákar sem ég er með núna(allir gömlu vinirnir eru útskrifaðir enda eldri) eru gæðablóð og held ég að þeir séu þeir menn sem munu fylgja mér til grafar á endanum(eða öfugt). Allt er gott. Eða kannski ekki. Ég er allaveganna sáttur.

Blood, Sweat and tears

Dóri D



mánudagur, október 18, 2004

Kill Bill, Ill Chill 

Ég og Danni erum að chilla mjög feitt í skrifuðum orðum. Með tvær fartölvur, Vanilla Sky, munchbabar and the Whole Nine.

Það var fundur í stúdíoinu áðan og við ákváðum að gefa út "mulan" compiliation 1.des. Síðan er NBC diskurinn væntanlegur. Ég er annars í heavy annarlegu ástandi, ég er að fatta að hvað ég vil og hvað ég vil ekki. Ég er líka svo þunnur að ég geti ekki greint milli fact og fiction.

Crossroads.

sunnudagur, október 17, 2004

Blóð, beikon og bling-bling 

Djöfull er fucking nice að taka laumu og byrja að rita á þetta blogg ,,incognito´´. Gæti sagt margt um sumarið, talað um þegar við hituðum upp fyrir 50 cents eða 2 vikna ferð till Hollands en ég bara meika það ekki. Skólinn er eitur-feitur um þessar mundir en ég held að ofsalega mörgum sé hálf illa við mig.

Í gær voru mamma og pabbi að segja mér frá einhverjum vini sínum sem býr út í Englandi. Þau hafa ekkert hitt hann lengi og voru að segja að þegar þau voru sem þéttust þá hefðu samskipti þeirra alltaf verið keppni um hvor væri fyndnari. Tony(gæinn) t.d. þóttist einu sinni vera lamaður fyrir neðan háls þegar hann flaug hingað frá London og lét bera sig út um allt á flughöfninni og m&p sóttu hann á rútu og gáfu honum ljótasta lampa sem um getur´, bara sem dæmi. Mamma sagði eftir þetta setningu sem fokkaði mér frekar mikið upp; ,,Þarna hélt ég að líf mitt yrði ekkert nema hlátur og grín, ég efast að ég myndi nenna þessu í dag´´. Ég er hræddur, mér finnst eins og ég sjái framtíðina.

Backwards






föstudagur, júní 25, 2004

Götuhátið Jafningjafræðslunnar 

Ef einhver er svo góður á því að vera enn að athuga hvort ég muni uppfæra einhverntíma, þá skal ég bara viðurkenna það að ég er kominn í sumarfrí í bloggi og mun ekki uppfæra meira í sumar....held ég. En svona annars víst að ég er byrjaður á þessu á annað borð þá ætla ég að blogga aðeins núna.

Ég er farinn að vinna hjá jafningjafræðslunni og það er alveg frábært. Þar eru tvær stúlkur að nafni Unnur og Heiða sem eru Rocking my world. Unnur er einmitt með undratækið "skjaldbökuna" að nudda mig núna og er það ógeðslega þægilegt.

Við erum að halda götuhátíð á morgun og er dagskráin like whoa;

Unethical project(Dóri DNA í nýjum búning)
Ice Guys
Of stars we are
Brúðubíllinn
Stríðsmenn
Dáðadrengir
Dansatriði
Bent og 7Berg
O.N.E
Magadans

Bardagalistasýning, leiktæki, nammi, gúmmelaði, fjör, húllum hæ.

Lækjartorgi, laugardaginn 26.júní frá 12:30 til 16:00

Mætið í Kæting


Summertime

This page is powered by Blogger. Isn't yours?